Opið hús: Kuggavogur 19, 104 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 01 17. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 28. janúar 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.
Lýsing
Nánari lýsing:
Forstofa er með fataskáp og parket á gólfi.
Eldhús er með rúmgóðri innréttingu, innbyggðri uppþvottavél, helluborði og parket á gólfi.
Stofa/borðstofa er opin við eldhús, útgengi um rennihurð á sérafnotareit, en samþykktar teikningar liggja fyrir vegna yfirbyggingu og lokunar á honum. Parket á gólfi.
Svefnherbergi með góðum fataskáp og parket á gólfi.
Baðherbergi með flísum á gólfi og hluta af veggjum, góð innrétting, upphengt salerni, handklæðaofn og sturta. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara og skápur þar fyrir ofan.
Geymsla er 5,7 fm í kjallara.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Stutt er í alla helstu þjónustu og skemmtilegar gönguleiðir við sjávarsíðuna. Hjóla- og göngustígar liggja meðfram ströndinni sem og upp í Elliðaárdal.
Nánari upplýsingar veitir Kristín María Stefánsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 837-1177 eða á netfanginu kristin@trausti.is eða Elísabet Guðmundsdóttir aðstoðarmaður fasteignasala í síma 822-4848 eða á netfanginu elisabet@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.