Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Eikjuvogur 1

104 Reykjavík

55.900.000 kr.

799.714 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2023500

Fasteignamat

50.250.000 kr.

Brunabótamat

29.300.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1960
svg
69,9 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur
Opið hús: 7. apríl 2025 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Eikjuvogur 1, 104 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 00 01. Eignin verður sýnd mánudaginn 7. apríl 2025 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Fasteignasalan TORG kynnir: Falleg og mikið endurnýjuð 2.herbergja íbúð á jarðhæð/kjallara með sér inngangi á þessum eftirsótta stað Eikjuvogi 1 Reykjavík.
Um er að ræða eign sem er skráð skv fmr. 69,9 fm. Eignin er 2ja herbergja íbúð í sjarmerandi staðsteyptu þríbýlishúsi miðsvæðis í borginni. Í lok árs 2024 var eldhús, baðherbergi og gólfefni endurnýjað ásamt vatnslögnum að hluta og skolpi í íbúð. Stutt er í alla helstu þjónustu.
Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eð hafdis@fstorg.is
Sækja söluyfirlit hér:
Nánari lýsing:

Forstofa: komið er inn um sérinngang inn í forstofu með flísum á gólfi.
Eldhús: Eldhúsið var uppgert nóv/des árið 2024. Falleg hvít innrétting með gráirjóttri borðplötu og flísum á milli efri og neðri skápa. Ísskápur er innbyggður, spanhelluborð og bakaraofn. Rúmgóður borðkrókur og harðparket á gólfi.
Borðstofa: við hlið eldhúss er rúmgóð borðstofa með harðparketi á gólfi.
Svefnherbergi: Herbergið er rúmgott og með harðparketi og lausum fataskáp sem fylgir með.
Stofa: Stofan er rúmgóð og björt með glugga á þrjá vegu og með harðparketi á gólfi.
Baðherbergi: Baðherbergið er glæsilegt og var uppgert nóv/des 2024. Flísalagt er í hólf og gólf, sturta með glerskilrúmi, upphengt salerni, skápur undir og yfir vaski og opnanlegur gluggi.
Geymsla: Sér útigeymsla við inngang fylgir þessari eign.
Þvottahús: Í sameign er sameiginlegt þvottahús, hver með sína vél, sem og sameiginleg vagna og hjólageymsla.  

Niðurlag: þetta er rúmgóð, falleg og mikið endurnýjuð íbúð á eftirsóttum stað í borginni þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.
Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða hafdis@fstorg.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan TORG bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á. 

 

img
Hafdís Rafnsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasalan TORG
Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
img

Hafdís Rafnsdóttir

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
11. feb. 2016
21.200.000 kr.
24.500.000 kr.
69.9 m²
350.501 kr.
18. feb. 2011
13.700.000 kr.
15.200.000 kr.
69.9 m²
217.454 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone

Hafdís Rafnsdóttir

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ