Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2000
93,8 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 14. maí 2025
kl. 17:00
til 17:30
Opið hús: Núpalind 6, 201 Kópavogur, Íbúð merkt: 04 01 01. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 14. maí 2025 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Snyrtilega og virkilega vel staðsetta 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með stórri timburverönd í góðu fjölbýlishús við Núpalind 6 í Kópavogi. Eignin samanstendur af forstofu, tveimur svefnherbergjum, stofu, eldhúsi, baðherbergi og þvottahúsi sem er innan eignar og sér geymslu í sameign.Einungis eru tvær íbúðir á neðstu hæð sem gefur aukið næði.
Samkvæmt Þjóðskrá Ísland er íbúðin 93,8 fm og þar af er sér geymsla íbúðar 5,8 fm.
***Smellið hér til að sækja söluyfirlit***
Allar upplýsingar gefur Magnús Þórir Matthíasson löggiltur fasteignasali, sími 8951427, magnus@eignamidlun.is
Nánari lýsing:
Forstofa hefur parket á gólfi og þar er rúmgóður fataskápur.
Svefnherbergin eru tvö og hafa bæði rúmgóða fataskápa. Parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf en þar er sturtuklefi og baðkar ásamt snyrtilegri innréttingu.
Þvottahús hefur tengi fyrir þvottavél og þurrkara ásamt vinnuborði, skápum og vaski. Flísar á gólfi.
Eldhús hefur hvíta nýlega innréttingu og mikið skápapláss, eldavél með gufugleypi. Einnig er innbyggður ísskápur og innbyggð uppþvottavél. Parket á gólfi.
Stofan er björt og rúmgóð, útgengt á sólpall. Parket á gólfi.
Sólpallur er rúmgóður og snýr í suðvestur. Á pallinum er óupphituð geymsla. Hlið er á sólpalli þannig að hægt er að ganga beint frá bílastæði inn um svalahurð.
Sérgeymsla í sameign er 5,8 fm.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í sameign á jarðhæð.
Gott malbikað bílaplan er við húsið og mörg bílastæði.
Nýtt parket á gólfum ásamt nýjum hurðum frá Birgisson, íbúðin er einnig nýmáluð.
Eignin er mjög vel skipulögð og rúmgóð. Snyrtileg fjölskylduíbúð á frábærum stað í Lindahverfi í Kópavogi. Lindaskóli og leikskólinn Núpur eru ofar í götunni og því er örstutt að ganga í skólana. Við skólann er stórt leiksvæði, með fótboltavelli og skólahreystibraut. Einnig er grænt svæði með gönguleiðum þar fyrir ofan.
Stutt er í alla helstu þjónustu, Krónan, Smáratorg og Smáralind í göngufæri ásamt því að stutt er í sundlaugina við Versali.
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.
Nánari upplýsingar veitir:
Magnús Þórir Matthíasson lögg. fasteignasali í síma 895-1427 eða magnus@eignamidlun.is
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
31. jan. 2025
67.450.000 kr.
72.000.000 kr.
40101 m²
1.795 kr.
2. mar. 2017
30.750.000 kr.
41.500.000 kr.
93.8 m²
442.431 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025