Lýsing
FASTMOS kynnir: Rúmgóð og björt 4ra herbergja íbúð á efstu hæð (3. hæð) með bílastæði í lokuðum bílakjallara í klæddu lyftuhúsi við Þorláksgeisla 27 í Grafarholti í Reykjavík. Eigin er nýmáluð að innan og laus til afhendingar við kaupsamning.
Eignin er skráð 113,5 m2, þar af íbúð 106,0 m2 og geymsla 7,5 m2. Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu og borðstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Sérgeymsla er í sameign í kjallara. Bílastæði í bílsgeymslu með rafhleðslustöð fylgir eigninni.
Svalir í suðurátt með fallegu útsýni. Frábær staðsetning á jaðri byggðar við opið útivistarsvæði rétt við vinsælar göngu- og hjólaleiðir á Hólmsheiði. Stutt í skóla, leikskóla og alla helstu þjónustu.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.
Nánari lýsing:
Forstofa er með fataskápum og flísum á gólfi.
Eldhús er með innréttingu og flísum á gólfi. Í innréttingu er helluborð og ofn. Gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu.
Stofa/borðstofa er í björtu opnu rými með parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á svalir í suðvesturátt.
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er með parketi á gólfi og góðum fataskápum. Úr
Svefnherbergi 2 er með parketi á gólfi og fataskápum.
Svefnherbergi 3 er með parketi á gólfi og fataskápum.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum að hluta, salerni, baðkari, sturtuklefa, handklæðaofni og innréttingu með handlaug.
Þvottahús er með flísum á gólfi.
Geymsla er í sameign í kjallara 7,5 m2.
Bílastæði með rafhleðslustöð í lokuðum bílakjallara fylgir eigninni.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er á 1. hæð.
Verð kr. 87.600.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.