Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Heimir Hafsteinn Eðvarðsson
Árni Björn Erlingsson
Vista
fjölbýlishús

Lautasmári 3

201 Kópavogur

72.900.000 kr.

757.009 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2229111

Fasteignamat

67.800.000 kr.

Brunabótamat

49.000.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1997
svg
96,3 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús

Lýsing

Árni B.Erlingsson Lfs og Fasteignaland ehf. kynna eignina Lautasmára 3, 201 Kópavogi, nánar tiltekið eign merkt 02-01, fastanúmer 222-9111 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Eignin er skráð, samkv. HMS 96.3 fm.

Um er að ræða bjarta 3 herbergja íbúð á 2.hæð í 6 hæða fjölbýlishúsi. Komið er inn í andyri með skápum.  Baðherbergi með bæði sérstandandi sturtuklefa og baðkari. Snyrtileg innrétting er í baðherberginu, flísar á gólfi og veggjum. Við hliðina á baðherberginu er lítið þvottaherbergi með flísum á gólfi, vaski og veggfestum hillum. Eldhús er bjart með snyrtilegum innréttingum og góðum borðkrók. Stofa/Borðstofa er ágætlega rúmgott rými með útgengi á flísalagðar suðursvalir. Hjónaherbergi er rúmgott með góðu skápaplássi. Geymsla er inn af sameign í kjallara hússins.

FRÁBÆR STAÐSETNING Í HJARTA KÓPAVOGS 
Hér er um að ræða fasteign sem er vel staðsett í hjarta Kópavogs. Stutt er í verslun og þjónustu, er í göngufjarlægð. Stutt í leikskóla, grunnskól og íþrótta/líkamsræktar aðstöðu. Smáralind er hinu megin við götuna og Smáratorg verslunarkjarni þar er Bónus, apótek og heilsugæsla.

Íbúðin skiptist svona:
Andyri: Parket á gólfi og tvöfaldur skápur.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og veggjum. Sturtuklefi, baðkar og snyrtileg innrétting með ljósum og skápum.
Þvottaherbergi: Flísar á gólfi með vaski og blöndunartæki. Pláss fyrir bæði þvottvél og þurkara.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi og gott skápapláss.
Herbergi: Parket á gólfi og gott skápapláss.
Eldhús: Snyrtileg innrétting og ágætt skápapláss. Góður og bjartur borðkrókur.
Stofa/borðstofa: Parket á gólfi og útgengi á svalir.
Svalir: Flísalagðar og snúa í suðurátt.
Geymsla: Inn af sameign í kjallara.

Nánari upplýsingar veita:
Árni Björn Erlingsson löggiltur fasteignasali / s.898-0508 / arni@fasteignaland.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 

img
Árni Björn Erlingsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignaland ehf
Skeifunni 2, 108 Reykjavík.
Fasteignaland ehf

Fasteignaland ehf

Skeifunni 2, 108 Reykjavík.
img

Árni Björn Erlingsson

Skeifunni 2, 108 Reykjavík.
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
30. ágú. 2017
33.000.000 kr.
42.700.000 kr.
96.3 m²
443.406 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Fasteignaland ehf

Fasteignaland ehf

Skeifunni 2, 108 Reykjavík.

Árni Björn Erlingsson

Skeifunni 2, 108 Reykjavík.