Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Heiðar Pálsson
Árni Björn Kristjánsson
Helen Sigurðardóttir
Hrafnkell Pálmarsson
Vista
fjölbýlishús

Andrésbrunnur 11

113 Reykjavík

69.900.000 kr.

727.367 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2262039

Fasteignamat

65.550.000 kr.

Brunabótamat

49.640.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2003
svg
96,1 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta
Opið hús: 22. apríl 2025 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Andrésbrunnur 11, 113 Reykjavík, Íbúð merkt: 02 03 03. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 22. apríl 2025 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Palsson Fasteignasala kynnir:

Fallega og bjarta 3ja herbergja íbúð á efstu hæð í lyftuhúsi. Íbúðinni fylgir stæði í lokaðri bílageymslu.

* Skjólgóðar suður-svalir
* Skipt um þakdúk í desember 2023 
* Stæði í bílageymslu 


Nánari upplýsingar veita:
Evert Guðmundsson Lgf. í s: 823-3022 eða evert@palssonfasteignasala.is

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Birt stærð eignar samkv. Fasteignaskrá Íslands er 96,1 fm og er íbúðarrýmið sjálft 87,0 fm og geymsla á jarðhæð 9,1 fm og fylgir íbúðinni stæði í 3ja bíla bílageymslu.


Eignin skiptist í forstofu, þvottahúsi, samliggjandi stofu og borðstofu, eldhúsi, tveimur herbergjum, baðherbergi og geymslu í sameign.
Forstofan er með fataskáp og flísum á gólfi.
Stofan / borðstofan er rúmgóð og björt með parket á gólfi og útgengi út á rúmgóðar suður-svalir.
Eldhús er með góðri hvítmálaðri innréttingu. Bakaraofn var endurnýjaður 2016, viftan í lok árs 2017 og blöndunartæki 2020, tengi fyrir uppþvottavél. Gluggi er til norðurs og með mikið útsýni. Parket á gólfi.
Svefnherbergi 1 er rúmgott með fataskápum. Parket á gólfi 
Svefnherbergi 2 er með fataskáp og parket á gólfi.
Baðherbergi er með baðkari með sturtu, upphengdu salerni, innréttingu undir og við handlaug og flísalagt í hólf og gólf. Blöndunartæki við vask og baðkar endurnýjuð 2020.
Þvottahúsið er innan íbúðar og eru flísar á gólfi.
Á jarðhæð er góð hjólageymsla í sameign og þaðan er gengið inn í 9,1 fm sérgeymslu.
Íbúðinni fylgir stæði í lokaðri bílageymslu. Nokkuð nýlega búið að setja nýjan mótor í bílskúrshurðir.

Skipt var um þakdúk á húsi númer 11 í desember 2023.

Garður er sameiginlegur
Um er að ræða mjög rúmgóða og bjarta íbúð á góðum stað í Grafarholtinu í hverfi Sæmundarskóla einnig eru leikskólar líka í göngufæri. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Borgartúni 3, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
20. ágú. 2021
42.350.000 kr.
51.100.000 kr.
96.1 m²
531.738 kr.
20. mar. 2018
34.500.000 kr.
39.500.000 kr.
96.1 m²
411.030 kr.
4. jún. 2014
21.950.000 kr.
26.000.000 kr.
96.1 m²
270.552 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Borgartúni 3, 105 Reykjavík