Opið hús: Rekagrandi 3, 107 Reykjavík, Íbúð merkt: 02 03 02. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 14. maí 2025 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.
Lýsing
Eignin skiptist í forstofu, stofu / borðstofu, eldhús, svefnherbergi með skápum og baðherbergi. Auk sérgeymslu í kjallara og bílastæði í bílageymslu.
Lýsing eignar:
Inngangur, sameiginlegur og snyrtilegt og vel umgengið teppalagt stigahús.
Forstofa, parketlögð og með fataskáp.
Stofa / borðstofa, rúmgóð með útgengi á góðar vestursvalir.
Eldhús, opið við stofu með nýlegri Ikea innréttingu, innbyggð uppþvottavél, nýr bakaraofn í vinnuhæð. Ísskápur og uppþvottvél fylgir.
Hjónaherbergi rúmgott með fataskáp.
Baðherbergi, flísalagt gólf og veggir, vegghengt wc, innrétting, flísalögð sturta og tengi fyrir þvottavél. Sambyggð þvottavél/þurrkari fylgir.
Íbúðin var mikið endurnýjuð að innan árið 2017, m.a. gólfefni, innihurðir, baðherbergi, eldhúsinnrétting ásamt tækjum. Nýr bakaraofn. Íbúðin er nýmáluð.
Húsið hefur fengið mjög gott viðhald í gegnum tíðina og er sameign einstaklega snyrtileg.
Sérgeymsla, í sameign en hún er ekki skráð í fermetratölu eignar samkvæmt HMS. Sameiginlegt þvottaherbergi með snúrum og sameiginleg hjólageymsla.
Lóðin sem er fullfrágengin er með grasflötum, stéttum og góðri leikaðstöðu fyrir börn. Lóðin er í óskiptri sameign.
Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á eftirsóttum stað þaðan sem örstutt er í leikskóla, barnaskóla, verslanir og fallegar gönguleiðir.
Nánari upplýsingar veitir Auðun Ólafsson löggiltur fasteignasali í síma 894-1976 / audun@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.