Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ingólfur Geir Gissurarson
Heiðar Friðjónsson
Snorri Snorrason
Óskar H. Bjarnasen
Snorri Björn Sturluson
Elín Alfreðsdóttir
Vista
svg

404

svg

288  Skoðendur

svg

Skráð  14. maí. 2025

fjölbýlishús

Ugluhólar 10

111 Reykjavík

45.900.000 kr.

713.841 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2050179

Fasteignamat

43.250.000 kr.

Brunabótamat

33.150.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1978
svg
64,3 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Valhöll kynnir 2ja herbergja íbúð í vel viðhöldnu fjölbýlishúsi í Hólahverfinu í Breiðaholti. Íbúðin er á jarðhæð með útgengi á graslagðan sérafnotareit. Inngangur í íbúðina er frá stigahúsi ofan við húsið og þaðan er gengið niður einn stiga að íbúðinni.

Samkvæmt Fasteignaskrá HMS er íbúðin skráð 64,3 fm á stærð.

BÓKIÐ SKOÐUN: Elín Alfreðsdóttir lgf í sima 8993090 eða elina@valholl.is

Húsinu hefur verið haldið vel við í gegnum árin og viðhaldi sinnt jafnt og þétt eftir þörfum eins og má sjá á lista yfir framkvæmdir neðar í lýsingu. Íbúðin er að mestu leyti upprunaleg að innan.

Íbúðin skiptist í forstofu, baðherbergi, eldhús, stofu og svefnherbergi. Þá fylgir íbúðinni sérgeymsla í sameign og aðgengi á sameiginlegu þvottahúsi og hjóla-og vagnageymslu sem er einnig á 1. hæð.

Íbúðin er í grónu og góðu hverfi þar sem stutt er í flesta þjónustu og fallega gönguleiðir í náttúrunni í Elliðarárdalnum.

Nánari lýsing:
Forstofa: forstofa með fatahengi og parketi á gólfi.

Baðherbergi: rúmgott baðherbergi með sturtuklefa, innréttingu og flísum á gólfi og veggjum.

Eldhús: eldhús í opnu alrými með stofunni með eldri viðarinnréttingu og parketi á gólfi.

Stofa: stofa með parketi á gólfi og útgengi út á graslagðan sérafnotareit í suður sem er ekki afmarkaður.

Svefnherbergi: svefnherbergi með fataskápum og parketi á gólfi.

Geymsla: rúmlega 5 fm sérgeymsla á sömu hæð og íbúð.

Þvottahús: sameiginlegt þvottahús á sömu hæð og íbúð.

Hjóla- og vagnageymsla: sameiginleg hjólageymsla ásamt leikherbergi á sömu hæð og íbúð. 

Viðhald undanfarin ár samkvæmt húsfélagi:
2024 – Gluggar og gler endurnýjað ásamt hluta útihurða í húsinu.
2023 Hurðir inn í hverja íbúð endurnýjaðar og settar eldvarnarhurði .
2020 – Þakjárn og þakpappi endurnýjað.
2019 – Svalahandrið.
2018 Hurðir inn í hverja íbúð endurnýjaðar og settar eldvarnarhurði .

Væntanlegt viðhald samkvæmt húsfélagi:
2025 - Múrviðgerðir og málun á anddyri og norðuhlið hússins. Hússjóður greiðir.
2025 – Endurnýjun á hitagrind hússins (ef pípari telur þörf). Hússjóður greiðir.
2026 - Endurnýjun á frárennslislögnum. Á eftir að samþykkja tilboð.

Hússjóður:
Í framkvæmdarsjóð eru núna til um það bil 2.346.00 kr. í Hússjóð eru til um það bil 394.000 kr. Húsgjöld íbúðarinnar eru núna 28.798 kr. á mánuði.  

Íbúðin er hluti af dánarbúi. Sami eigandi bjó í íbúðinni frá upphafi en seljendur þekkja ekki ástand íbúðarinnar umfram opinber gögn og hvetja þeir því væntanlega kaupendur að kynna sér ástand eignarinnar vel. Íbúðin verður seld í því ásigkomulagi sem hún er í.

Upplýsingar veitir Elín Alfreðsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8993090 eða elina@valhöll.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

img
Elín Alfreðsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Valhöll fasteignasala
Síðumúla 27, 108 Reykjavík
Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone
img

Elín Alfreðsdóttir

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone

Elín Alfreðsdóttir

Síðumúla 27, 108 Reykjavík