Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Kristján Baldursson
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Sólveig Regína Biard
Kristín María Stefánsdóttir
Viktoría Rannveig Larsen
Aðalsteinn Jón Bergdal
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Vista
svg

1781

svg

1199  Skoðendur

svg

Skráð  24. maí. 2025

fjölbýlishús

Kambasel 30

109 Reykjavík

74.900.000 kr.

658.751 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2057118

Fasteignamat

68.950.000 kr.

Brunabótamat

53.450.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1980
svg
113,7 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Trausti fasteignasala kynnir í einkasölu afar fallega íbúð á þriðju hæð að Kambaseli 30, 109 Reykjavík. Eignin skiptist í forstofu, hol, þrjú svefnhverbergi, baðherbegi, eldhús og stofu með rúmgóðum svölum ásamt þvottahúsi innan eignar. Eignin hefur verið endurnýjuð á virkilega snyrtilegan hátt á síðustu árum. 

Eignin er skráð samkvæmt Þjóðskrá Íslands alls 113,7 fm þar af er íbúðin 108,8 fm og geymsla í sameign 4,9 fm. 

Nánari lýsing:
Forstofa: Gengið er inn í forstofu með góðum skáp. Flísar á gólfi. 
Eldhús: Snyrtilegt með fallegri hvítri innréttingu frá HTH, góðu skápaplássi, bakaraofn og helluborð ásamt tengi fyrir uppþvottavél. Flísar á gólfi.
Stofa/borðstofa: Björt og rúmgóð stofa þar sem er útgengt út á suðursvalir með fallegu útsýni. Parket á gólfi. 
Hjónaherbergi: Rúmgott með fataskáp og útgengi á svalir. Parket á gólfi.
Barnaherbergi: Eru tvö talsins, annað þeirra er með fataskáp. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Snyrtilegt með ljósri innréttingu, baðkari og upphengdu salerni. Flísalagt í hólf og gólf.
Þvottahús: Er staðsett inn af eldhúsi með góðu plássi, tengi fyrir þvottavél og þurrkara ásamt glugga. Flísar á gólfi.   
Sameign: Sameiginleg hjólageymsla og sér geymsla. 

Endurbætur síðustu ár:
2012 - Eignin var parketlögð með harðparketi frá Agli Árnasyni. 
2016-2017 - Skipt um stóran hluta ofna, þeim sem var ekki skipt út voru síðan endurnýjaðir árið 2024 ásamt því að skipt var um glugga í stofu, barnaherbergi og sjónvarpsholi. Baðherbergi og eldhús voru einnig endurnýjuð. 
2022 - Verksýn gerði heildar ástandsskoðun á ytra byrði eignar og var farið í framkvæmdir til að laga allt sem þar kom fram, m.a. viðgerðir á þaki gluggum, endurnýjun á svalahurð í svefnherbergi, sprunguviðgerðir og málun ásamt öðru. 
2024 - Sameiginleg hleðslustöð var sett upp við blokkina.
2025 - Sameign endurnýjuð þar sem var skipt um teppi, veggir málaðir og settar voru upp styrkingar á álagspunktum.

Um er að ræða frábæra eign með góðu skipulagi á besta stað í Seljahverfinu þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, leikskóla og skóla.

Nánari upplýsingar um eignina veita Kristín María Stefánsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 837-1177 eða á netfanginu kristin@trausti.is og Viktoría R. Larsen löggiltur fasteignasali í síma 618-5741 eða á netfanginu viktoria@trausti.is 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

img
Kristín María Stefánsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Trausti fasteignasala
Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone
img

Kristín María Stefánsdóttir

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
29. nóv. 2017
33.850.000 kr.
41.000.000 kr.
113.7 m²
360.598 kr.
22. sep. 2006
17.800.000 kr.
21.000.000 kr.
113.7 m²
184.697 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone

Kristín María Stefánsdóttir

Vegmúla 4, 108 Reykjavík