Opið hús: Blöndubakki 13, 109 Reykjavík, Íbúð merkt: 07 03 01. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 3. júní 2025 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Bókið skoðun hjá Halla Unnur Helgadóttir í síma 6594044, eða halla@gimli.is
Eignin Blöndubakki 13 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 204-7398, birt stærð 117.8 fm. Nánar tiltekið eign merkt 03-01, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Íbúð 98,2 fm, tómstundaherbergi 14,1 fm og geymsla 5,5 fm.
NÁNARI LÝSING:
Anddyri/hol: fatahengi og geymsla með hillum (snyrting skv teikningu).
Eldhús: nýleg nýleg innrétting með viðaráferð, gott skápa- og borðpláss, góð vinnuaðstaða, nýleg tæki og ofnar í vinnuhæð. Físar á gólfi. Stór gluggi með opnanlegu fagi og útsýni yfir borgina. Gert ráð fyrir barstólum
Borð- og setustofa: rými opið að holi, parket á gólfi, gólfsíðir nýir gluggar og útgengi á suðursvalir sem snúa út í sameiginlegan garð.
Aðalsvefnherbergi: innst á svefnherbergisgangi, rúmgott og bjart með parketi á gólfi og fataskápum í innskoti (hægt að breyta í fataherbergi).
Svefnherbergi #2: plastparket á gólfi, fallegt útsýni.
Svefnherbergi #3: plastparket á gólfi, fallegt útsýni.
Baðherbergi: flísar á gólfi og veggjum, vaskur í innréttingu, ágætir skápar, L-laga borðplata, tengi fyrir þvottavél og baðkar með sturtu.
Tómstundaherbergi #4: dúkur gólfi, gluggi með opnanlegu fagi og aðgangur að sameiginlegu WC. Útleigumöguleiki.
Geymsla: sérgeymsla íbúðarinnar er í kjallara innaf sameignarrými, þar er einnig sameiginlegt þvottahús og hjóla- og vagnageymsla.
Bílastæði eru malbikuð. Búið er að koma fyrir hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla. Sameiginlegur skjólgóður garður með leiktækjum, batta- og körfuboltavöllur rétt við húsið, sem og leik- og grunnskóli.
Árið 2020 var húseignin múrviðgerð og máluð, ný drenlögn lögð norðan megin við húsið ásamt því að þakniðurföll voru endurnýjuð. Árið 2024 voru gluggar endurnýjaðir á suðurhlið (stofa-/borðstofa) og svalahurð.
Vel skipulögð eign með útleigumöguleika í grónu hverfi þar sem stutt er grunn- og leikskóla, Mjóddina og margvíslega þjónustu.
Rúmgóð og vel skipulög eign í grónu hverfi. Örstutt í leik- og grunnskóla og Mjóddina með margvíslegri þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir: Halla Unnur Helgadóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 6594044, tölvupóstur halla@gimli.is eða gimli@gimli.is
Gimli fasteignasala hefur stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti á fimmta áratug og er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð árið 1982. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki, traust og góð þjónusta. Gimli, gerir betur...
Gimli er staðsett á 2. hæð á Grensásvegi 13, 108 Reykjavík og á 2. hæð á Eyravegi 29, Selfoss.
Opnunartími frá kl. 10 -16 alla vikra daga, sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is
Heimasíða Gimli fasteignasölu
Gimli á Facebook
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.
Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.
Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.
Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni.
Gimli gerir betur...