Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1982
50,4 m²
2 herb.
1 baðherb.
1 svefnh.
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 2. júní 2025
kl. 17:00
til 17:30
Opið hús: Seilugrandi 9, 107 Reykjavík, Íbúð merkt: 06 01 01. Eignin verður sýnd mánudaginn 2. júní 2025 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Falleg og nýlega endurnýjuð tveggja herbergja íbúð á 1. hæð, (jarðhæð) með útgengi út á stóra, skjólgóða og afgirta verönd til suðvesturs. Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi og stóra geymslu. Sameiginlegt þvottahús á hæðinni. Eignin er skráð hjá Þjóðskrá 50,4 fm. en að auki er góð sérgeymsla sem fylgir og er ekki inn í fm. tölu íbúðar.Nánari lýsing
Rúmgóð forstofa með nýjum fataskápum.
Stofa og eldhús mynda alrými sem er opið, bjart og nýtist vel. Ný eldhúsinnrétting með vönduðum heimilistækjum frá Siemens. Útgengt er úr stofu á stóra afgirta og skjólgóða verönd til suðvesturs.
Svefnherbergið er bjart. Ekki eru fataskápar í svefnherbergi en auðveldlega væri hægt að koma fyrir skápum.
Baðherbergið er með nýjum flísum og sérpöntuðu sturtugleri með nær fullri lofthæð. Blöndunartæki frá Tengi. Falleg baðinnrétting úr spónlagðri eik. Stór spegill yfir innréttingu. Upphengt salerni.
Gólfefni íbúðarinnar er harðparket frá Ebson. Í baðherbergi eru flísar frá Ebson. Gluggar eru á tveimur hliðum íbúðar og vísa í suður og vestur. Nýjar rúllugardínur úr Casalisa.
Íbúðinni fylgir rúmgóð geymsla með hillum. Geymslan er á sömu hæð og íbúðin. Sameiginlegt þvottahús með þvottavélum og þurrkara er á sömu hæð og íbúðin.
Íbúðin var öll endurnýjuð fyrir um það bil ári síðan: Nýtt baðherbergi, eldhús, gólfefni, gluggatjöld, innihurðar. Húsið er steinsteypt og hefur hlotið gott viðhald. 2023 var endurnýjað teppi á stigahúsi. 2024 var skipt um allt gler sem talið var þörf á.
Stór garður er á milli húsanna við Seilugranda og Rekagranda sem myndar stórt og snyrtilegt útisvæði, m.a. með leiktækjum fyrir börn.
Stutt er í leikskóla, skóla og alla þjónustu. Vesturbæjarlaug, Melabúðin, Kaffi Vest, Eiðistorg og Sundlaug Seltjarnarness eru allt í göngufæri. Frábær staðsetning við ströndina á grandanum í Vesturbænum.
Nánari upplýsingar veitir:
Unnar Kjartansson, löggiltur fasteignasali, í s:867-0968 eða unnar@eignamidlun.is
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
5. mar. 2024
45.000.000 kr.
51.500.000 kr.
50.4 m²
1.021.825 kr.
27. mar. 2019
28.400.000 kr.
31.900.000 kr.
50.4 m²
632.937 kr.
16. des. 2016
22.150.000 kr.
29.900.000 kr.
50.4 m²
593.254 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025