Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Skerjabraut 1

170 Seltjarnarnes

59.900.000 kr.

985.197 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2351425

Fasteignamat

55.450.000 kr.

Brunabótamat

33.500.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2015
svg
60,8 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta

Lýsing

Fasteignasalan TORG og Margrét Rós, lgf, kynna í sölu fallega og vel skipulagða 2ja herbergja endaíbúð á jarðhæð með skjólgóðri verönd í snyrtilegu lyftuhúsi (byggt 2015) við Skerjabraut 1 á Seltjarnarnesi. Eignin skiptist í opið anddyri, rúmgott og bjart alrými með samliggjandi stofu, borðstofu og eldhús með útgengi á rúmgóða verönd, rúmgott svefnherbergi með skápum, baðherbergi með sturtu og þvottaaðstöðu með tengi fyrir þvottavél og þurrkara ásamt sérgeymslu í kjallara. Frábær íbúð fyrir fyrstu kaupendur! Allar nánari upplýsingar veitir Margrét Rós lgf. í s. 856-5858 eða margret@fstorg.is

*** SÆKJA SÖLUYFIRLIT HÉR ***

Birt stærð eignar skv. fasteignaskrá HMS er 60,8 m2 þar af er geymsla, skráð 6,0 m2 að stærð.

Um er að ræða fallega og vel staðsetta eign í nýlegu lyftuhúsi á vinsælum stað á Seltjarnarnesi. Fjölbreytt verslun og þjónusta í göngufjarlægð ásamt sundlaug Seltjarnarnes, líkamsrækt og íþróttasvæði Gróttu. Einnig er stutt í alla nærþjónustu Vesturbæjar eins og sundlaugina, KR völlinn, Kaffi Vest, Melabúðina og svo mætti lengi áfram telja. Örstutt er í góð útivistarsvæði og fallegar gönguleiðir meðfram sjávarsíðuna til að njóta útiverunnar.

HVERS VIRÐI ER ÞÍN FASTEIGN? BÓKA FRÍTT VERÐMAT

Nánari lýsing: 
Komið er inn í opið parketlagt anddyri með innbyggðum fataskáp. mjög rúmgott og bjart alrými á hægri hönd með samliggjandi stofu, borðstofu og eldhús sem er opið við stofu. Nýlegt parket á gólfi og útengi á stóra afgirta hellulagða verönd. Eldhús með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Bakaraofn í vinnuhæð, flísar á milli efri og neðri skápa, innfelld lýsing undir skápum og nýlegt span helluborð. Inn af stofu er parketlagður gangur, og við enda hans er stórt svefnherbergi með góðum skápum og flísalagt baðherbergi bæði á veggjum og gólfi. Handklæðaofn, sturta, upphengt salerni og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Í kjallara er 6,0 m2 sérgeymsla og snyrtilegt sameiginlegt þvottahús með sértengi fyrir hverja íbúð. 

Húsið og lóðin: Skerjabraut 1 er hluti af fjöleignarhús við Skerjabraut 1-3 og er fjögurra hæða steinsteypt hús. Í mhl. 01 eru 17 íbúðir og mhl. 02 eru sex íbúðir eða alls 23 íbúðir í báðum húsum. Húsið er byggt árið 2015, teiknað af T.ark arkitektum og lítur ágætlega út að utan ásamt lóðinni allt í kring. Aðkoma að húsinu er til fyrirmyndar og aðgengi að íbúðinni er mjög gott þar sem gengið er beint inn af jarðhæð. Sameign hússins er öll hin snyrtilegasta, sameiginlegt þvottahúsi er í kjallara ásamt sameiginlegri vagna- og hjólageymslu. Á sameiginlegu bílaplani utanhúss fyrir íbúa að Skerjabraut 1-3 eru næg bílastæði, eða alls 34 stæði og þar af eru þrjú ætluð hreyfihömluðum. Tvö rafhleðslustæði eru á bílaplani.

ERTU Í SÖLUHUGLEIÐINGUM? SMELLTU HÉR

Virkilega falleg eign í grónu og eftirsóttu hverfi á Seltjarnarnesi sem vert er að skoða. Frábær fyrstu kaup. 

Nánari upplýsingar veita:
Margrét Rós Einarsdóttir - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala. / s. 856-5858margret@fstorg.is
Aðalsteinn Bjarnason - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s.773-3532 / adalsteinn@fstorg.is

KÍKTU Í HEIMSÓKN TIL MÍN Á FACEBOOK
VILTU VITA HVAÐ VIÐSKIPTAVINIR OKKAR HAFA SEGJA? SMELLTU HÉR

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 

img
Margrét Rós Einarsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasalan TORG
Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
img

Margrét Rós Einarsdóttir

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
27. júl. 2020
36.700.000 kr.
39.400.000 kr.
60.8 m²
648.026 kr.
13. maí. 2015
11.950.000 kr.
26.900.000 kr.
60.8 m²
442.434 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone

Margrét Rós Einarsdóttir

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ