Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2012
85,2 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Útsýni
Sérinngangur
Opið hús: 1. júlí 2025
kl. 16:30
til 17:00
Opið hús: Stekkjartún 30 - 202, eignin verður sýnd þriðjudaginn 1. júlí 2025 milli kl. 16:30 og kl. 17:00.
Lýsing
Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Stekkjartún 30 - 202
Falleg og mjög vel skipulögð 3-4 herbergja íbúð á efri hæð í fjórbýli í Naustahverfi. Eignin er samtals 85,2 fm. Mjög stutt í leik- og grunnskóla.
Eignin skiptist í forstofu, gang, eldhús og stofu í opnu rými, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu.
Forstofa er með dökkar flísar á gólfi og góðum fataskáp og skúffum.
Gangur er með parket á gólfi.
Eldhús og stofa í opnu og mjög björtu rými með parket á gólfi. Innrétting í eldhúsi er mjög rúmgóð með góðu bekkjarplássi. Bakaraofn í vinnuhæð og innbyggður ísskápur og uppþvottavél sem fylgir. Útgengt er út á stórar svalir til suðurs, úr eldhúsi.
Svefnherbergi eru tvö, bæði með parket á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, góð innrétting í kringum vask, upphengt salerni, sturta með sturtugleri, handklæðaofn og opnanlegt fag.
Þvottahús er með flísar á gólfi, góða innréttingu með miklu skápaplássi og vask inn í skáp.
Geymsla inn af þvottahúsi hefur verið nýtt sem svefnherbergi, þar er parket á gólfi og opnanlegt fag.
Annað:
-Sameiginlegt geymsluloft yfir íbúðunum á efri hæð, aðgengilegt um fellistiga.
-Húsið málað að utan 2023
-Markísa á svölum fylgir
-Nýlegur innbyggður ísskápur með frysti og uppþvottavél í eldhúsi fylgja
-Tvö stæði á bílaplani fylgja eigninni
-Flott útsýni er úr eigninni og af svölum til suðurs
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:
bjorn@byggd.is
greta@byggd.is
berglind@byggd.is
olafur@byggd.is
Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
7. des. 2021
35.000.000 kr.
43.000.000 kr.
85.2 m²
504.695 kr.
15. okt. 2012
7.730.000 kr.
21.735.000 kr.
85.2 m²
255.106 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025