Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2021
65,7 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Sameiginl. inngangur
Bílastæði
Lyfta
Opið hús: 7. september 2025
kl. 16:00
til 16:30
Opið hús: Dugguvogur 7, 104 Reykjavík, Íbúð merkt: 04 03 05. Eignin verður sýnd sunnudaginn 7. september 2025 milli kl. 16:00 og kl. 16:30.
Lýsing
Nýtt á skrá! Dugguvogur 7 Reykjavík - Bókið skoðun.
Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynna til sölu afar fallega og vel skipulagða 65,7 fermetra 3ja herbergja íbúð á 3. hæð með 4,0 fermetra svölum með svalalokun í nýlegu fjölbýlishúsi með lyftu við Dugguvog 7 í Reykjavík. Vandað hús byggt af ÞG Verk.
Gott alrými sem er opin stofa við eldhús. Sér bílastæði í lokuðum bílakjallara á góðum stað. Útgengi úr stofu á svalir með svalalokun. Þvottaaðstaða inn af baðherbergi. Rúmgóð 7,2 fermetra sérgeymsla í kjallara og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Hellulögð stétt fyrir framan hús með snjóbræðslu. Sameign er snyrtileg með flísum á sameiginlegri forstofu og teppi á stigagöngum. Lyklalaust aðgengi á flestum hurðum í sameign og kjallara. Nýlegt myndavélakerfi í bílakjallara. Myndavéladyrasími í íbúðum. Bílnúmeramyndavélar á aðalhurð í bílakjallara sem lesa bílnúmer við innakstur. Fallegur bakgarður sem er tyrfður lyngtorfi, garðbekkjum, kvöldlýsingu og leiktækjum.
Um er að ræða eftirsótta staðsetningu í góðu nýlegu fjölskylduhverfi í Vogabyggð í Reykjavík. Leikskóli í göngufjarlægð. Verslun og þjónusta í næsta nágrenni ásamt frábærum hjóla- og gönguleiðum við Elliðaárvoginn. Mikil útivist allt í kring og fallegt umhverfi. Laugardalurinn í næsta nágrenni.
Nánari lýsing:
Forstofa: Með harðparketi á gólfi og skápum.
Stofa: Með harðparketi á gólfi og gluggum til vesturs. Stofa rúmar setustofu og borðstofu. Stofa er opin við eldhús.
Svalir: Eru 4,0 fermetrar að stærð með svalalokun og svalagólf klætt með viði.
Eldhús: Með harðparketi á gólfi og fallegri sprautulakkaðri eldhúsinnréttingu frá Nobila (GKS). Innbyggður kæliskápur með frysti, innbyggð uppþvottavél, spansuðuhelluborð, bakaraofn og vifta. Stýranleg lýsing undir skápum og útloftun.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta með glerþili og falleg sprautulökkuð innrétting við vask með speglaskáp fyrir ofan. Handklæðaofn, upphengt salerni og útloftun.
Svefnherbergi I: Með harðparketi á gólfi, skápum og gluggum til vesturs.
Svefnherbergi II: Með harðparketi á gólfi, skápum og gluggum til vesturs.
Geymsla: Er staðsett á geymslugangi og er 7,2 fermetrar að stærð.
Bílastæði í lokuðu bílskýli: Vel staðsett. Myndavélavaktaður bílakjallari og aðgangsstýring (myndavélar) á bílakjallara.
Hjóla og vagnageymsla: Er staðsett við bílageymslu og með útgengi á baklóð hússins.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
1. des. 2021
19.550.000 kr.
55.900.000 kr.
65.7 m²
850.837 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025