Lýsing
* EINIGRUND 8 * 2ja herbergja íbúð (59.3 m²) á 2. hæð til hægri í fjölbýlishúsi (24 íbúðir) ásamt sérgeymslu í kjallara (8.9 m²) = 68.2 m²
og sameiginlegt þvottahús í kjallara. Yfirbyggðar svalir.
LAUS VIÐ KAUPSAMNING !
Forstofa/Hol (parket, fatahengi).
Baðherbergi (dúkur, tengi fyrir á þvottavél, ekki gluggi).
Stofa (parket,útgangur á suður Yfirbyggðar Svalir (málað gólf, meðfram stofugluggum)
Eldhús (parket, antikeik innrétting, ekki eldavél, vifta, opið að stofu).
Svefnherbergi (parket, fataskápur).
Sérgeymsla í kjallara (málað gólf, hillur, gluggi).
SAMEIGN: Forstofa (flísar). Stigahús (teppi). Kjallari (málað gólf). Þvottahús (málað gólf, þvottavél og þurrkari). Þurrkherbergi, hjólageymsla, wc (málað gólf).
ANNAÐ: Endurnýjað járn á þaki 2017. Svalir yfirbyggðar 2017/2018. Búið að endurnýja neysluvatsnlagnir upp í íbúð. Búið að skipta um glugga (plast) í göflum. Gaflar steinaðir að utan 2011.Teppi endurnýjuð á stigahúsi. Eldvarnahurð á íbúð og sameign. Þakkantur endurnýjaður 2008 + rennur. Blokkin máluð að utan 1995. Keypt út þrif á sameign. Malbikað plan. Endurnýjaðir póstkassar.
Eignin þarfnast verulegra endurbóta, málning, innréttingar, tæki, gólfefni o.fl.
Stutt frá Grundaskóla, Jaðarsbakkalaug, leikskóla, íþróttavelli, matvöruverslun o.fl
Allar upplýsingar í söluyfirlitinu eru fengnar hjá seljendum og úr opinberum gögnum.
************
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hákot bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali metur eignina með sjónskoðun.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildar fasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, umboði, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Umsýslugjald kr. 49.600 (m/vsk).
4. Lántökugjald veðskuldabréfa samkvæmt gjaldskrá lánveitenda.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á