Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
fjölbýlishús

Ásatún 12 íbúð 102

600 Akureyri

58.000.000 kr.

779.570 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2347451

Fasteignamat

46.400.000 kr.

Brunabótamat

38.900.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2013
svg
74,4 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Sérinngangur
svg
Lyfta

Lýsing

Fasteignasalan Hvammur 466 1600 

Ásatún 12 íbúð 102 - Skemmtileg 2-3ja herbergja íbúð með sér inngangi á jarðhæð í fjölbýli í Naustahverfi - stærð 74,4 m² 

Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús og tvær geymslur, þar af önnur innan íbúðar sem nýtist sem svefnherbergi í dag. 

Forstofa er með flísum gólfi og þreföldum spónlögðum eikar fataskáp. 
Eldhús, spónlögð eikar innrétting með hvítlökkuðu flísum á milli skápa. Stæði er í innréttingu fyrir uppþvottavél og ísskáp. Búið er að bæta við innréttinguna ljósum neðri skápum. 
Stofa og eldhús eru í opnu rými þar sem parket er á gólfi. Úr stofu er gengið út á steypta verönd með timbur skjólveggjum. Veröndin er skrá skv. teikningum 11,8 m² að stærð. 
Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja, spónlagðri eikar innréttingu, upphengdu wc og walk-in sturtu. Þvottaaðstaða er inn á baðherberginu, eikar innrétting með skolvask og opnanlegur gluggi.  
Svefnherbergið er með parketi á gólfi og tveimur fataskápum. Herbergið er skv. teikningum 14,5 m² að stærð. 
Geymsla innan íbúðar hefur verið nýtt sem svefnherbergi, þar er parket gólfi og stór opnanlegur gluggi. Geymslan er skráð skv. teikningum 7,8 m² að stærð. 
Sér geymsla í sameigninni er skráð 2,4 m² að stærð. 

Annað
- Eignin var máluð að innan í febrúar 2025.
- Sameignleg hjóla- og vagnageymsla.
- Búið er að setja upp hleðslustaura á bílaplaninu. 
- Vel staðsett eign með sér inngangi á jarðhæð.
- Eignin er í einkasölu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
19. maí. 2014
8.140.000 kr.
19.000.000 kr.
291.7 m²
65.135 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone