Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Finnbogi Hilmarsson
Gunnlaugur A. Björnsson
Brynjólfur Snorrason
Ragnar Þorgeirsson
Sigríður Lind Eyglóardóttir
Ásdís Írena Sigurðardóttir
Elsa Björg Þórólfsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Fálkagata 16

107 Reykjavík

59.900.000 kr.

903.469 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2028610

Fasteignamat

58.050.000 kr.

Brunabótamat

31.100.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1969
svg
66,3 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

Heimili Fasteignasala kynnir til sölu bjarta og fallega tveggja herbergja endaíbúð á fyrstu hæð með sérinngangi og gluggum á þrjá vegu í litlu steinsteyptu fjölbýli byggðu árið 1969 í vesturbæ Reykjavíkur. Eignin er skráð 66,3m2 að stærð, þar af íbúðarrými 61 m2 og geymsla 5,3 m2, og skiptist í anddyri, gang, stofu, eldhús, baðherbergi og svefnherbergi auk sér geymslu, sameiginlegs þvottashúss og sameiginlegrar hjóla- og vagnageymslu. Björt og falleg íbúð á frábærum stað.

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., brynjolfur@heimili.is

Nánari lýsing.

Gengið um sérinngang í forstofu eignar þar sem er fatahengi. Á gólfi eru flísar. Frá anddyri liggur gangur inn í stofu og eldhús sem eru í sameiginlegu opnu rými. Í stofu er parket á gólfi og stórir gluggar til suðurs. Í eldhúsi er falleg hvít innrétting, mikið skápapláss, góð vinnuaðstaða, ofn í vinnuhæð og stór eyja. Á gólfi eru flísar og í eldhúsi er gluggi til vesturs. Svefnherbergi eignar er rúmgott með parketi gólfi og stórum fataskáp. Inn af svefnherbergi er flísalagður sturtuklefi og handlaug og frá gangi er gengið inn á flísalagða snyrtingu þar sem er vegghengt WC og handlaug. Í sameign er sameiginlegt þvottahús, rúmgóð sérgeymsla íbúðar og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.

Í húsinu er virkt húsfélag og ágæt staða á sjóðum þess. Árið 2022 var sett ný tafla í sameign, ný útiljós og sjálfvirkir kastarar. Árið 2020 var húsið múr- og steypuviðgert og málað og fyrir um 10 árum síðan var þak yfirfarið og endurnýjað að hluta (járn, pappi og timbur eftir þörfum). Um svipað leiti voru frárennslislagnir fóðraðar og árið 2019 voru þær ásamt regnvatns-, og drenlögnum myndaðar og sagðar þá í góðu lagi. 

Á lóð húseignar eru loks átta bílastæði í óskiptri sameign ásamt sameiginlegum garði með leiksvæði. 
 
Björt og falleg íbúð á frábærum stað í vesturbæ Reykjavíkur þar sem stutt er í Háskóla Íslands, Ægissíðuna og miðbæinn.

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., brynjolfur@heimili.is


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

img
Brynjólfur Snorrason
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Heimili fasteignasala
Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
Heimili fasteignasala

Heimili fasteignasala

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
phone
img

Brynjólfur Snorrason

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
26. jan. 2022
41.450.000 kr.
45.500.000 kr.
66.3 m²
686.275 kr.
5. feb. 2013
18.550.000 kr.
22.100.000 kr.
66.3 m²
333.333 kr.
6. nóv. 2007
13.690.000 kr.
16.500.000 kr.
66.3 m²
248.869 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Heimili fasteignasala

Heimili fasteignasala

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
phone

Brynjólfur Snorrason

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík