Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2022
89,1 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Bílastæði
Lyfta
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Vel skipulögð og björt 89,1 fm þriggja herbergja íbúð á annarri hæð ásamt stæði í bílageymslu í nýlegu og vönduðu 62 íbúða lyftuhúsi í Vogahverfinu í Reykjavík. Verslun og þjónusta í næsta nágrenni ásamt frábærum hjóla- og gönguleiðum við Elliðaárvoginn. Mikil útivist allt í kring og fallegt umhverfi. Laugardalurinn í næsta nágrenni.Samkvæmt skráningu HMS er birt flatarmál eignarinnar 89,1m², flatarmál íbúðarrýmis er 85,2m² og flatarmál geymslu er 3,9m². Bílastæði í bílageymslu merkt B32 fylgir íbúðinni.
Eignin skiptist í anddyri, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymslu og stæði í bílakjallara.
Smellið hér til að fá söluyfirlit sent strax
Nánari lýsing:
Anddyri / gangur með vínilparketi á gólfi.
Stofa er rúmgóð og opin við eldhús, vínilparket á gólfi, gluggar til suðurs með útsýni yfir sameiginlegan garð. Stofa rúmar vel setustofu og borðstofu. Frá stofu er gengið út á sólríkar suðvestur svalir.
Eldhús með vínilparket á gólfi og fallegri sérsmíðaðri ítalskri eldhúsinnréttingu með eyju, borðplötur eru úr Silestone kvartssteini. Innbyggður kæliskápur með frysti, innbyggð uppþvottavél. Vandaður bakaraofn með sjálfhreinsibúnaði ásamt spanhelluborði.
Hjónaherbergi er rúmgott með vínilparketi á gólfi, skápum og gluggum til norðausturs.
Aukaherbergi er með vínilparketi á gólfi, skápum og gluggum til norðausturs.
Baðherbergi eru með flísum á gólfi og veggjum. Flísalögð sturta með glerþili og falleg innrétting við vask með speglaskáp fyrir ofan. Handklæðaofn, vegghengt salerni og útloftun. Gott skápapláss er á baði
Þvottahús með upphækkun fyrir þvottavél og þurrkara, skolvaski, hillum. Flísar á gólfi.
Gólfhiti er í íbúðinni allri ásamt gólfsíðum gluggum sem gera hana bjartari fyrir vikið. Mynddyrasími er í íbúðinni. Uppsett rafhleðslustöð í stæði í bílakjallara fylgir með. Sérgeymsla íbúðar er í sameign og er þar mikil lofthæð.
Nánari uppl.
Brynjar Þór Sumarliðason löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur í síma 896 1168 - brynjar@eignamidlun.is
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
27. jún. 2022
26.900.000 kr.
69.500.000 kr.
89.1 m²
780.022 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025