Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Borga Harðardóttir
Þyrí Guðjónsdóttir
Vista
svg

942

svg

710  Skoðendur

svg

Skráð  23. des. 2025

fjölbýlishús

Álalind 2b

201 Kópavogur

105.600.000 kr.

866.284 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2360902

Fasteignamat

85.900.000 kr.

Brunabótamat

78.450.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2017
svg
121,9 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta
Opið hús: 28. desember 2025 kl. 13:00 til 13:30

Opið hús: Álalind 2b, 201 Kópavogur, Íbúð merkt: 01 01 04. Eignin verður sýnd sunnudaginn 28. desember 2025 milli kl. 13:00 og kl. 13:30.

Lýsing

Valborg ehf kynnir eignina Álalind 2b, 201 Kópavogur, nánar tiltekið mjög bjarta og fallega 5 herbergja endaíbúð á fyrstu hæð á þessum vinsæla stað með stæði í bílskýli.  Íbúðin sjálf er um 115 fm. ásamt 7 ferm. geymslu eða samtals 122 fm.  Stæði í bílahúsi er um 25 fm en telst ekki til fermetra í eigninni. Svefnherbergin eru 4 samtals, öll rúmgóð með mjög góðu skápaplássi og parketi á gólfi.  Tveir trépallar tilheyra íbúðinni, annar um 10 ferm og hinn tæpir 40 fm.
Íbúðin er öll parketlögð utan votrými í baðherbergi sem er flísalagt ásamt forstofu sem er líka flísalögð.  Allar innréttingar og skápar frá HTH.  Útihurðir með rafmagnsopnun.
Opið hús verður í eigninni sunnudaginn 28.12. kl. 13:00-13:30
Nánari upplýsingar veitir Elvar Guðjónsson viðskfr. og lögg fasteignasali, í síma 8954000, tölvupóstur elvar@valborgfs.is.

Nánari lýsing:
Gengið inn í forstofu með góðu skápaplássi og flísum á gólfi. 
Tvö svefnherbergi á hægri hönd, annað með útgengi á lítinn pall í suður. Síðan gengið beint inn í alrými með eldhúsi með góðri eyju og stofu í framhaldi. 
Alrýmið er bjart og fallegt með góðu gluggaplássi á tvo vegu, sem gerir góða birtu í öllu rýminu. Aukin lofthæð.  Spansuðuhella er í eyjunni, ásamt innbyggðum gufugleypi. Útgengi er á stóran og góðan trépall úr stofunni í alrýminu.
Baðherbergi með sturtu og góðum HTH innréttingum, flísalagt í hólf og gólf.  Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara í baðherbergi.
Önnur tvö svefnherbergi þar innaf, bæði rúmgóð með góðu skápaplássi og stærra herbergið er einnig með útgengi á pallinn sem fylgir íbúðinni. 
Íbúðin hefur einnig afnot af góðum garði sem er í sameign en nýtist bara þessari íbúð.
Tiltölulega stutt er í bæði skóla og leikskóla og þurfa börn aldrei að fara yfir umferðargötu til þess að komast í þá.

​​​​​​Heitt vatn er hitað með hitaveituvatni í varmaskiptakerfi (ekkert hitaveituvatn)
Þrifum í sameign er úthýst. Sami eigandi frá upphafi.

Nánari upplýsingar veitir Elvar Guðjónsson viðskfr. og lögg fasteignasali, í síma 8954000, tölvupóstur elvar@valborgfs.is.


Eignin Álalind 2b er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 236-0902, birt stærð 121.9 fm.
Fasteignamat næst árs er kr. 90.750.000,-


Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.  Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
 

Valborg fasteignasala

Valborg fasteignasala

Nóatún 17, 105 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
24. okt. 2019
51.000.000 kr.
30.000.000 kr.
121.9 m²
246.103 kr.
30. maí. 2017
4.160.000 kr.
54.900.000 kr.
121.9 m²
450.369 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Valborg fasteignasala

Valborg fasteignasala

Nóatún 17, 105 Reykjavík
phone