Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Heiðar Pálsson
Árni Björn Kristjánsson
Helen Sigurðardóttir
Hrafnkell Pálmarsson
Tinna Bryde
Vista
fjölbýlishús

Naustabryggja 41

110 Reykjavík

54.900.000 kr.

784.286 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2267543

Fasteignamat

57.300.000 kr.

Brunabótamat

37.000.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2004
svg
70 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 18. janúar 2026 kl. 15:00 til 15:30

Opið hús: Naustabryggja 41, 110 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 02 04. Eignin verður sýnd sunnudaginn 18. janúar 2026 milli kl. 15:00 og kl. 15:30.

Lýsing

Palsson Fasteignasala kynnir:

Falleg og vel skipulögð 70 fm íbúð á annari hæð við Naustabryggju
Við kynnum til sölu fallega og vel skipulagða íbúð á annari hæð á rólegum og eftirsóttum stað við Naustabryggju. Umhverfið við bryggjuna, nálægðin við sjóinn og góðar gönguleiðir setja sterkan svip á daglegt líf og stutt er í alla helstu þjónustu.

-  Róleg og vinsæl staðsetning við bryggjuna
-  Suðursvalir og björt stofa 
-  Góð bílastæðaaðstaða fyrir íbúa og gesti


Nánari upplýsingar veitir:
Tinna Bryde, Lgf. í síma 660-5532 eða tinna@palssonfasteignasala.is

www.verdmat.is
Góð ráð fyrir kaupendur og seljendur 

Samkvæmt HMS er íbúðin 70 fm að stærð, þar af er 6,8 fm geymsla.
Nánari lýsing eignar:
Forstofa er með fataskáp og náttútuflísum á gólfi. 
Eldhús er með góðri innréttingu, góðu skápaplássi og náttúruflísum á gólfi.
Stofa er rúmgóð með gegnheilu viðarparketi og útgengi út á suðursvalir með tveimur opnanlegum hurðum.
Svefnherbergi er rúmgott með góðum fataskápum og máluðu gólfi.
Baðherbergi er með innréttingu og hornbaðkari með sturtu. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara og náttúruflísar á gólfi. 

Aðstaða og umhverfi:
Þvottaherbergi er í sameign hússins þar sem hver íbúð er með tengi fyrir þvottavél.
Sameiginleg hjóla og vagnageymsla er við hlið útihurðar. 
Gott bílastæðaframboð er við húsin í götunni. 
Húsið er með snyrtilega sameign og virkt húsfélag með gott utanumhald. 

Naustabryggja er rólegt og eftirsótt svæði við bryggjuna þar sem næði og sjávartenging skapa notalegt umhverfi. Fallegar gönguleiðir liggja meðfram bryggjunni og stutt er í alla helstu þjónustu og samgöngur, sem gerir staðsetninguna bæði þægilega og eftirsótta.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Borgartúni 3, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
12. jún. 2012
15.800.000 kr.
18.500.000 kr.
70 m²
264.286 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Borgartúni 3, 105 Reykjavík