Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Björn Guðmundsson
Berglind Jónasardóttir
Greta Huld Mellado
Vista
fjölbýlishús

Furulundur 6 P

600 Akureyri

49.500.000 kr.

621.079 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2146341

Fasteignamat

45.200.000 kr.

Brunabótamat

38.800.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1976
svg
79,7 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
Opið hús: 5. febrúar 2026 kl. 16:00 til 16:30

Lýsing

    

Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala 

Furulundur 6 P

Þriggja herbergja íbúð á annari hæð í tveggja hæða fjölbýli með sér inngangi af svölum á vinsælum stað á Brekkunni. Eignin er skráð samtals 79,7 fm. að stærð þar af er geymsla í sameign 2,4 fm. 

Eignin skiptist í forstofu, stofu og eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og geymslu. Lítil sér geymsla í sameign og sameignleg hjólgeymsla. 


Forstofa með flísum á gólfum, inn af forstofu er barnaherbergi.
Stofa/eldhús eru í opnu rými, parket á stofu en korkflísar á gólfi í eldhúsi. Gengið er út á svalir til suðurs úr stofu og er þar gott útsýni til vesturs.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta. Baðkar með sturtutækjum og glerskilrúmi, rafmagns handklæðaofn, innrétting við vask og er þar stæði fyrir þvottavél. 
Svefnherbergin eru tvö, eitt minna sem er innaf forstofu og annað rúmgott með fataskáp. 
Geymslurnar eru tvær, ein innan íbúðar og önnur í sameign. 

Annað: 
- Búið að skipta um gluggalista í gluggum í húsinu.
- Húsið málað og múrviðgert fyrir nokkrum árum. 
- Þakið var einnig málað fyrir ca 4 árum. 
- Ca. 2-3 ár síðan var skipt um útihurðir. 
- Nýlegar snjógildrur á þaki.
- Frárennslislagnir vorur skoðaðar fyrir nokkrum árum síðan og komu þær vel út.
- Rafmagnskynding. 
- Mjög stutt í leik- og grunnskóla, verslun og fl.. 
- Sameiginleg rafhleðslustöð í vestur enda á bílaplani. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila.    (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 

Frekari upplýsingar:
olafur@byggd.is
greta@byggd.is
bjorn@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 


 

Byggð fasteignasala

Byggð fasteignasala

Skipagata 16, 600 Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
19. ágú. 2021
25.600.000 kr.
30.500.000 kr.
79.7 m²
382.685 kr.
22. des. 2017
17.500.000 kr.
21.500.000 kr.
79.7 m²
269.762 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggð fasteignasala

Byggð fasteignasala

Skipagata 16, 600 Akureyri
phone