Sveinn Eyland lögg.fasteignasali á staðnum.
Lýsing
Um er að ræða vel skipulagt og bjart fjögurra herbergja 93.4 fm endaraðhús við Gráhellu 51 á Selfossi.
Gólfsíðir gluggar eru í flestum rýmum sem að gerir eignina opnari og bjarta.
Afgirt ca. 25 fm verönd bakvið hús, góð bílastæði framan við húseign og gott svæði við enda húseignar.
Stutt gönguleið í leikskóla og Sunnulækjarskóla.
EIGNIN GETUR VERIÐ LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING.
Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands:
Húseign er 93.4 fm að stærð merkt 09-01-01 með fastanúmer.236-2022.
Nánari upplýsingar um eign:
Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 eða sveinn@landmark.is
FÁÐU SENT SÖLUYFIRLIT YFIR EIGN STRAX HÉR.
Eignin skiptist í:
Forstofu, gang, stofu/borðstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, geymslu og afgirt verönd.
Nánari lýsing á eign:
Komið er inn í rúmgóða forstofu með fataskáp.
Gangur og af honum er gengið í önnur rými eignar.
Stofa/borðstofa og eldhús er í einu opnu rými með gólfsíðum gluggum á tvo vegu, útgengt er á afgirta verönd úr stofurými.
Eldhús er með snyrtilegri ljósri innréttingu með efri og neðri skápum, eldunareyja með helluborði skilur af stofu og eldhús, gufugleypir er ofan við eyjuna, innbyggð uppþvottavél er í innréttingu og gert er ráð fyrir einföldum ísskáp í innréttingu.
Þrjú svefnherbergi eru í húsinu og eru fataskápar í öllum herbergjum.
Baðherbergi er rúmgott með Walk-in sturtuklefa með glerskilrúmi, ágætis innrétting með skúffum undir baðvask, vegghengt salerni, handklæðaofn á vegg, gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu á baðherbergi.
Geymsla eignar er innan íbúðar og er nokkuð rúmgóð.
Afgirt ca. 25 fm verönd er bakatil við húseign.
Gólfefni: Harðparket og flísar á gólfum eignar.
Húsið er klætt með Etemit stone pane og timbri, á þaki er litað járn. Eignin stendur á endalóð í botnlanga og því er mjög rúmgott svæði í kringum hana.
-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar mig allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða sveinn@landmark.is
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat