Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Elín Káradóttir
Hrönn Bjargar Harðardóttir
Kristín Rós Magnadóttir
Vista
fjölbýlishús

BLÓMVANGUR 2 ÍBÚÐ 305

700 Egilsstaðir

39.900.000 kr.

555.710 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2278163

Fasteignamat

32.600.000 kr.

Brunabótamat

37.100.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2005
svg
71,8 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

BYR fasteignasala kynnir BLÓMVANGUR 2 ÍBÚÐ 305 Egilsstöðum, í einkasölu. Íbúð á efstu hæð í þriggja hæða fjölbýlishúsi miðsvæðis á Egilsstöðum.
Stutt í alla almenna þjónustu, útsýni. Smellið hér fyrir staðsetningu.

Húsið er steypt fjölbýlishús, byggt árið 2005, eignin skiptist í íbúð, 63 m² og geymslu 8.8 m² samtals 71.8 m² samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag eignar: Forstofa, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, svefnherbergi og baðherbergi. Í sameign: Sér geymsla, þvottahús, hjóla- og vagnageymsla og sorpgeymsla. 

Nánari lýsing:
Forstofa með fatahengi og skóhirslu, flísar á gólfi.
Gangur liggur innan við forstofu að öðrum rýmum íbúðar.
Alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu. Útgengt er úr stofu út á svalir, (gróðurhús á svölum fylgir ekki).
Eldhús með upprunalegri innréttingu, í eldhúsi er helluborð, ofn, vifta og stálvaskur, gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu (getur mögulega fylgt).
Tengi er fyrir þvottavél þar sem uppþvottavél er í eldhúsinnréttingu. 
Svefnherbergi með fjórföldum fataskáp. 
Baðherbergi, sturta með sturtubotni og tveimur glerhurðum, salerni, vaskinnrétting og lítill veggskápur, flísar á gólfi. 
Gólfefni: Alrými, svefnherbergi og gangur með harðparketi frá Þ.Þorgrímssyni. Flísar á forstofu og baðherbergi.
Í kjallara er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla, ásamt sameiginlegri þvottaaðstöðu. Sér geymsla, 8.8 m² að stærð, er í kjallara.

Íbúðin var endurnýjuð að hluta til árið 2020: Skipt var um svalarhurð og opnanlegt fag í stofu.
Nýtt harðparket lagt á íbúðina frá Þ.Þorgrímssyni. Innveggir voru heilspartlaðir og málaðir af málarameistara.
Helluborð endurnýjað og blöndunartæki í eldhúsi, ásamt því að sett var upp tengi fyrir þvottavél í eldhúsi.
Sturtuhorn var endurnýjað, nýjar fíboplötur í sturtuhorni á vegg, öll blöndunartæki ný, sturtubotn nýr. Ljósleiðari.

Húsið Blómvangur 2 er steypt með tveimur utanáliggjandi stigahúsum. Húsið er þrjár hæðir og kjallari. Tuttugu og þrjár íbúðir eru í húsinu. Þak er flatt hefðbundið viðsnúið með pappa og fargi. 
Hellulögð stétt er að stigahúsum, malbikuð bílastæði, lóð er gróin. Lóðin er sameiginleg 2740,2 m² leigulóð í Múlaþings.

Skráning eignarinnar hjá HMS:
Fastanúmer 227-8163

Stærð: Íbúð 63 m²​, geymsla 8.8 m²​. Samtals 71,8 m².
Brunabótamat: 37.100.000 kr.
Fasteignamat: 32.600.000 kr.
Byggingarár: 2005.
Byggingarefni: Steypa.


ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 483 5800 - byr@byrfasteignasala.is 
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is
Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - hronn@byrfasteignasala.is
Sigurbjörg Halla Sigurjónsdóttir, löggiltur fasteignasali - silla@byrfasteignasala.is

Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.

Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.        
Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
 
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi -  0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga  / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

www.byrfasteign.is |  Austurmörk 7, 810 Hveragerði - Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala

Byr fasteignasala

Byr fasteignasala

Austurmörk 7, 810 Hveragerði
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
28. jan. 2023
25.650.000 kr.
32.000.000 kr.
71.8 m²
445.682 kr.
20. mar. 2020
18.550.000 kr.
45.300.000 kr.
214.6 m²
211.090 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Byr fasteignasala

Byr fasteignasala

Austurmörk 7, 810 Hveragerði