Lýsing
Eignin er 106 m2 samkvæmt HMS og er geymsla skráð 10,2 m2. Bílastæði í bílskýli ekki inn í fermetratölu íbúðar.
Sjón er sögu ríkari, bókið skoðun hjá Hallgrími Hólmsteinssyni í síma 896-6020 eða á tölvupóstfangið hallgrimur@trausti.is.
Nánar um eignina:
Anddyri með góðu skápaplássi, gegnheilt parket á gólfi.
Eldhús er opið við stofu og er mjög rúmgott með eyju, gott skápapláss, innbyggð uppþvottavél og parket á gólfi. Útgengt er út á suðursvalir frá stofu.
Stofa/borðstofa er stór og rúmgóð með fallegu útsýni, gegnheilt parket á gólfi.
Svefnherbergisgangur með tveim svefnherbergjum og baðherbergi, gegnheilt parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, bað með sturtuaðstöðu, gólfhiti.
Hjónaherbergi með góðu skápaplássi og gegnheilu parketi á gólfi.
Svefnherbergi með gegnheilu parketi á gólfi.
Þvottahús er innan íbúðarinnar, vinnuborð með vask og flísar á gólfi, gólfhiti.
Geymsla íbúðar er í kjallara hússins, stór og mjög rúmgóð.
Hjóla- og vagnageymsla í sameign.
Bílastæði íbúðarinnar er í bílskýli hússins og er ekki inn í fermetratölu íbúðarinnar.
Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum tíðina. Sameign er snyrtileg og nýlega hefur verið skipt um teppi í stigagangi. Marteinslaug er staðsett efst í Grafarholtinu þar sem stutt er í náttúru, göngu og hjólaleiðir. Gott útsýni er úr íbúðinni til norðurs og vesturs. Allar nánari upplýsingar veitir Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali í síma 896-6020 eða á netfanginu hallgrimur@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.