Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Fallegt 239,5 m2, einbýlishús með innbyggðum bílskúr við Laxatunga 139 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 239,5 m2, þar af einbýli 192,9 m2 og bílskúr 46,6 m2. Eignin skiptist í forstofu, 4 svefnherbergi, sjónvarpshol, stofu, borðstofu, eldhús, tvö baðherbergi, þvottahús og bílskúr. Fallegur bakgarður með timburverönd með heitum potti í suðurátt. Steypt bílaplan með snjóbræðslu. Vel staðsett eign í hverfinu með fallegt útsýni.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit strax.
Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp.
Eldhús er með hvítri innréttingu og eyju. Flísar á gólfi. Í innréttingu er helluborð og ofn. Gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu.
Stofa/borðstofa er í opnu og björtu rými með parketi á gólfi. Stórir gluggar með fallegu útsýni. Mikil lofthæð og innfelld lýsing.
Svefnherbergi 1 er með parketi á gólfi og fataherbergi. Úr herbergi er útgengt út á timburverönd með heitum potti.
Svefnherbergi 2 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 3 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 4 er með parketi á gólfi (Skráð skv. teikningu hobby herbergi).
Sjónvarpshol er með parketi á gólfi og aðskilið frá stofu.
Baðherbergi 1 er með flísum að hluta til. Hvít innrétting, handklæðaofn og baðkar. Úr baðherbergi er útgengt út á timburverönd.
Baðherbergi 2 er með flísum að hluta til. Á baði er 'walk in' sturta, innrétting, handklæðaofn og vegghengt salerni.
Þvottahús er með góðri innréttingu þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Flísar á gólfi.
Bílskúr er mjög rúmgóður eða um 46,6 m2.
Verð kr. 179.900.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.