Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Guðrún Hulda Ólafsdóttir
Ólafía Ólafsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Ljósavík 30

112 Reykjavík

85.900.000 kr.

770.404 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2252344

Fasteignamat

71.050.000 kr.

Brunabótamat

56.050.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2001
svg
111,5 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Útsýni
Opið hús: 12. maí 2025 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Ljósavík 30, 3. hæð vinstri, 112 Reykjavík. Eignin verður sýnd mánudaginn 12. maí 2025 milli kl. 17:00 og 17:30.

Lýsing

*ÍBÚÐIN STENDUR SÉR OFAN Á HÚSINU OG GLUGGAR Á 4 HLIÐUM*
*GLÆSILEGT ÚTSÝNI*

Lögheimili eignamiðlun kynnir bjarta og vel skipulagða 4ra herb. endaíbúð á þriðju og efstu hæð.  Eignin er samtals 111,5 fm.  Sérinngangur er í íbúðina frá sameiginlegum útisvölum.  Gluggar eru á 4 hliðum íbúðarinnar.  Þrjú rúmgóð herbergi.  Tvennar svalir með svalaparketi.  Glæsilegt útsýni, m.a. til Esjunnar og Faxaflóa.  Sérmerkt stæði er á sameiginlegu bílaplani.  Innihurðar og harðparket er endurnýjað.  Í næsta nágrenni er m.a. grunnskóli, framhaldsskóli, leikskóli, golfvöllur, kvikmyndahús, sundlaug, skemmtilegar gönguleiðir, Spöngin, verslun og ýmis þjónusta.
 
Eignin skiptist í forstofu, hol, stofu, eldhús, þvottaherbergi, þrjú herbergi, baðherbergi og sérgeymslu.
 
Nánari upplýsingar veitir: Eggert Ólafsson, löggiltur fasteignasali, í síma 893 1819, eggert@logheimili.is

Nánari lýsing:  Forstofa
er með fataskáp.  Rúmgott hol er opið inn í stofu og elhús.  Stofa er með útgengt á svalir með glæsilegu útsýni og opin inn í eldhús og hol.  Í eldhúsi er innrétting með viðaráferð, flísar milli efri og neðri skápa, keramikhellur með viftu yfir, tengi fyrir uppþvottavél og opið inn í stofu og hol.  Í baðherbergi er hvít innrétting, baðkar með sturtustöng og flísar upp veggi.  Hjónaherbergi er með fataskáp og útgengt á svalir.  Tvö barnaherbergi eru rúmgóð og björt.  Þvottaherbergi með skolvask, er í íbúð.  Harðparket er á gólfum, nema á forstofu, baðherbergi og þvottaherbergi þar sem eru flísar.  Sérgeymsla með hillum er á jarðhæð.   Hjólageymsla er í sameign.
 
Annað:  Samkvæmt fasteignayfirliti frá HMS er íbúð 104,2 fm. og geymsla 7,3 fm., eða samtals 111,5 fm.

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Lögheimili eignamiðlun því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun. 
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4 til 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.  Nánari   upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð.

Lögheimili Eignamiðlun ehf

Lögheimili Eignamiðlun ehf

Hlíðasmára 2. 201 Kópavogur og Skólabraut 26, 300 Akranes
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
19. nóv. 2019
42.950.000 kr.
50.900.000 kr.
111.5 m²
456.502 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Lögheimili Eignamiðlun ehf

Lögheimili Eignamiðlun ehf

Hlíðasmára 2. 201 Kópavogur og Skólabraut 26, 300 Akranes