Lýsing
Allar frekari upplýsingar veitir Finnbogi Hilmarsson fasteignasali. Smelltu hér til að fá sent söluyfirlit.
Komið er inn á anddyri með parketi á gólfi og góðum fataskáp. Mjög bjart og fallegt parketlagt opið rými sem er stofa, borðstofa og eldhús, stórir gluggar og mikið útsýni til norðurs, svalir í norðvestur. Í eldhúsi er falleg dökk viðarinnrétting, vönduð eldhústæki af gerðinni Bosch. Íbúðin er með span helluborði, innbyggðum kæliskáp, innbyggðri uppþvottavél og blástursofni. Stórt hjónaherbergi með parketi og rúmgóðum skápum. Rúmgott barnaherbergi með parketi og skápum. Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta, falleg innrétting með góðum skápum, sturta sem gengið er inní. Þvottahús með flísum á gólfi og hillum. Í bílastæðahúsi er sérbílastæði íbúðarinnar og er þar lagt fyrir rafmagnsbíl. Sérgeymsla er í sameign.
Íbúðin er í húsi byggðu árið 2023 og er því allt nánast nýtt. Á gólfum er ljóst harðparket fallegur sérsniðnar gardínum í gluggum sem setja mikinn svip á íbúðina (hægt að kaupa með). Innangengt er úr bílakjallara í lyftu- og stigahús. Skjólgóður garðar er milli samliggjandi húsa.
Fasteignamat eignarinnar verður kr. 75,2 milljónir frá janúar 2026.
Sunnusmári er í nýju hverfi miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu. Stutt er í alla þjónustu, úrval verslana og veitingastaða í Smáralind, skóla og leikskóla.
Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002. Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.