Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og talsvert endurnýjuð 84 m2, 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi við Starengi 30 í Grafarvogi, Reykjavík. Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu. Sólpallur til suðurs með skjólveggjum. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er staðsett í húsi númer 32. Fallegur sameiginlegur garður með leiktækjum fyrir börn. Stutt er í leik- og grunnskóla, íþrótta- og afþreyingarmiðstöð í Egilshöll, verslanir og þjónustu í Spönginni, golfvöll við Korpúlfsstaði og falleg útivistarsvæði með strandlengjunni. Búið er að setja upp hleðslustöðvar á bílastæði.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax
Nánari lýsing eignar:
Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp.
Stofa er með parketi á gólfi og útgengi á timburverönd til suðurs.
Eldhús er með parketi á gólfi, góðri hvítri L-laga innréttingu, uppþvottavél, bakaraofni, helluborði og viftu.
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er með parketi á gólfi og góðum fataskápum.
Svefnherbergi 2 er með parketi á gólfi.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, upphengdu salerni, baðkari með sturtuaðstöðu og góðri innréttingu með handlaug.
Þvottahús er með flísum á gólfi, vinnuborði með vaski og skápum.
Geymsla er innan íbúðar.
Sameiginleg hjólageymsla er í sameign, staðsett í húsi númer 32.
Fyrirhugað fasteignamat 2026 er kr. 63.750.000
Verð kr. 68.500.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.