Opið hús: Hverafold 25, 112 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 01 01. Eignin verður sýnd sunnudaginn 25. janúar 2026 milli kl. 15:00 og kl. 15:30.
Lýsing
Myndband
https://vimeo.com/fasteignamyndbond/hverafold25
Íbúðin er laus við kaupsamning
Nánari lýsing
Forstofa: flísar á gólfi og stór fataskápur. Skápahurðir nýsprautaðar.
Svefnherbergi: stór fataskápur með nýsprautuðum skápahurðum og nýtt parket á gólfi.
Barnaherbergi: rúmgott með nýju parketi.
Baðherbergi: flísar á gólfi, baðkar með sturtuaðstöðu og gert ráð fyrir þvottavél. Nýr skápur, ný handlaug, blöndunartæki og baðinnrétting.
Eldhús: snyrtileg innrétting frá 2021 og gott skápapláss þar sem m.a. er gert ráð fyrir uppþvottavél.
Stofa/borðstofa/eldhús: í opnu og björtu rými með útgengi á svalir.
Sérgeymsla: rúmgóð 6 fm sérgeymsla í kjallara fylgir íbúðinni með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Geymslan var máluð í janúar 2026. Snúrur eru í geymslunni. Í kjallara er einnig sameiginleg geymsla.
Viðhald og endurbætur: Íbúðin öll máluð í desember 2025, Nýtt parket lagt í desember 2025, Fataskápar sprautulakkaðir í desember 2025, Nýr gluggi í barnaherbergi og forstofu 2024, Nýjar útihurðir 2024
Eldhúsinnrétting endurnýjuð 2021
Íbúðin er 3ja herbergja í dag en er skráð sem 2ja herbergja samkvæmt teikningum og eignaskiptasamningi en eldhús var fært í stofuna og barnaherbergi útbúið þar sem eldhúsið var áður.
Á næstunni þarf að skipta um þakjárn en ekki er búið að ákveða neitt í þeim efnum enn.
Skipta á um rúðu (móða á milli glerja) í stærra svefnherberginu en umræður eru um að það verði gert á vegum húsfélagsins á næstunni.
Á heildarlóðinni eru kvaðir um bílastæði, 6 bílageymslur, kvöð um holræsi og vatnslögn, kvöð um umferð fyrir Hverafold 19-23, svo og einkafnotaréttur fyrir íbúðir á jarðhæð, merktur E, allt skv. viðfestum uppdrætti. Jafnframt er almenn kvöð um hvers konar lagnir borgarsjóðs eða stofnana hans, sem þörf er á. Kostnaður vegna viðhalds, umhirðu og reksturs sameiginlegra óskiptra bílastæða á þaki bílageymsluhúss skiptist jafnt á milli allra fasteigna á lóðinni. Hverri fasteign tilheyrir 1/16 hluti í slíkum kostnaði.
Allar nánari upplýsingar veitir Jason Kristinn Ólafsson, löggiltur fasteignasali. Netfang: jason@betristofan.is - s: 775-1515
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.