Lýsing
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 89,4fm. og þar af er geymsla 6,9fm.
Nánari lýsing eignar:
Gengið er inn af svölum inn í íbúðina.
Forstofa með góðu skápaplássi og parketi á gólfi.
Eldhúsið og stofan er eitt opið rýmið með mikillri lofthæð og rúmgott.
Stofa er rúmgóð og björt með parketi á gólfi. Úr stofu er útgengt út á rúmgóðar suður svalir.
Eldhús með svartri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél, gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu, helluborð, gufulgeypir, gott borðpláss og parket á gólfi.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með góðu skápaplássi og parketi á gólfi.
Baðherbergið hefur verið endurnýjað, rúmgott með innangengri sturtu, góðum innréttingum, handklæðaofni, upphengdu salerni og flísalagt í hólf og gólf.
Þvottahús er innan íbúðar en er í dag nýtt sem auka geymsla.
Geymsla íbúðar 6,9fm, er í kjallara hússins
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign hússins.
ATH: Íbúðin er skráð 3ja herbergja hjá FMR en er í dag 2ja herbergja.
Íbúðin er vel staðsett í þessu vinsæla hverfi og í góðu göngufæri við skóla, leikskóla, leiksvæði og útivistarparadísina við Elliðavatn sem er rétt handan við hornið. Eitt af einkennum hverfisins er mikil nánd við náttúruna.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-5949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.