Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2016
86,6 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Bílastæði
Lyfta
Lýsing
Betri Stofan Fasteignasala kynnir: Falleg og sérlega vel skipulögð 86,8 fm 3ja herbergja íbúð á jarðhæð á Grandavegi 42G. Yfirbyggðar svalir íbúðarinnar eru 10 fm sem eru ekki taldir með í birtri stærð íbúðarinnar. Sérmerkt stæði með hleðslustöð í lokaðri bílageymslu fylgir íbúðinni. Íbúðin er vönduð með góðu skápaplássi. Svefnherbergin eru tvö, bæði sérlega rúmgóð. Allir skápar og innréttingar eru frá HTH.
Nánari lýsing eignar:
Forstofa: Komið er inn í rúmgóða forstofu með fallegum gráum flísum á gólfi og góðum tvöföldum fataskáp í svartbæsaðri eik. Skápurinn er felldur inn í vegginn og nær upp í loft.
2 x Svefnherbergi: Svefnherbergin eru bæði sérlega rúmgóð. Sexfaldur fataskápur er í hjónaherbergi og tvöfaldur fataskápur er í barnaherberginu.
Stofa + borðstofa: Stofa og borðstofa eru saman í opnu rými með eldhúsinu. Útgengt er út á yfirbyggðar svalir sem snúa inn í rólegan og fallegan garð. Svalirnar snúa til suðvesturs svo sólin skín á þær frá hádegi til kvölds á sumrin.
Eldhús: Eldhúsið er í opnu rými með stofunni. Falleg innrétting er í vinkil með dökkum neðri skápum og hvítum efri skápum. Ísskápur er innbyggður og uppþvottavél líka, allur eldhúsbúnaður (fyrir utan eldhúsviftuna) er frá AEG. Einstaklega góð blöndunartæki frá Hansgrohe og stór vaskur frá Pyramis.
Baðherbergi: Gráar fallegar flísar eru á gólfi og hvítar flísar eru á tveimur veggjum. Falleg svartbæsuð eikarinnrétting er undir vaski og við hlið spegils. Spegilinn er með fallegri hulinni lýsingu. Stór sturta er beint á gólf með glerlokun. Innfeldur skápur með svartbæsuðum rennihurðum er í rýminu sem rúmar þvottavél, þurrkara og skolvask. Salernið er upphengt og handklæðaofn er á vegg. Blöndunartæki í vöskunum tveimur og í sturtu eru frá Hansgrohe.
Bílageymsla: Virkilega rúmgott sérmerkt stæði í lokaðri bílageymslu á efri hæð bílakjallara. Hleðslustöð fylgir. Tvö bílaþvottastæði og 19 gestastæði í bílakjallara.
Geymslur: Á jarðhæð er aðgangsstýrt geymslusvæði þar sem finna má rúmlega 6 fm sérgeymslu með tæplega 3 metra lofthæð, rafmagnstengi og útloftun. Þar er einnig verulega rúmgóð vagna og hjólageymsla.
Sameign : Sameignin er einstaklega vel hönnuð og glæsileg. Á milli húsanna að Grandavegi 42 er fallegur verðlaunagarður með snjóbræðslu í gangstétt. Snjóbræðsla er einnig í stigum og öðrum stéttum. Lyklalaust aðgengi er að öllum rýmum í sameign. Sjálfopnandi hurðar eru í anddyrum og inn í hús úr bílakjallara.
Nágrenni : Stutt í skóla, miðbæinn, verslanir og veitingastaði á Grandanum, KR svæðið, Vesturbæjarlaugina og margt fleira.
Nánari upplýsingar veitia:
Þórhallur Biering löggiltur fasteignasali í síma 896-8232 eða thorhallur@betristofan.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
11. mar. 2022
53.900.000 kr.
67.400.000 kr.
86.6 m²
778.291 kr.
16. sep. 2016
16.550.000 kr.
40.500.000 kr.
86.6 m²
467.667 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026