Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sverrir Kristinsson
Kjartan Hallgeirsson
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson
Daði Hafþórsson
Gunnar Helgi Einarsson
Gunnar Bergmann Jónsson
Jenný Sandra Gunnarsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Fálkagata 22

107 Reykjavík

82.900.000 kr.

791.786 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2028526

Fasteignamat

83.350.000 kr.

Brunabótamat

49.300.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1935
svg
104,7 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Sérinngangur

Lýsing

Eignamiðlun kynnir:

Rúmgóð 4 herbergja íbúð á 1. hæð í vel staðsettu þríbýlishúsi í Vesturbænum. Vinsæl staðsetning, nálægt háskólasvæðinu. Sérinngangur. 

Bókið skoðun. Allar upplýsingar gefur Kári Sighvatsson löggiltur fasteignasali, sími 899-8815, kari@eignamidlun.is 

Um er að ræða nánar tiltekið íbúð 101 við Fálkagötu 22, 107 Reykjavík, F2028526. 4 herbergja íbúð á 1. hæð. Samkvæmt Fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 104,7 fm, þar af er íbúðarrými 94,7 fm og sérgeymsla í kjallara hússins er 10 fm. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Sérgeymsla í kjallara. Fasteignamat 2026 = 92.850.000 kr.

*** Sækja söluyfirlit *** 

Nánari lýsing eignar: 
Anddyri, nýlegar flísar á gólfi (2023). Sérinngangur er í íbúðina. 
Eldhús er með stórri hvítri innréttingu með viðarborðplötum og góðum borðkrók. Nýlegt spanhelluborð (2023). Parket á gólfi. 
Stofa er rúmgóð, opin og björt, nýlegt parket á gólfi (2023).  
Svefnherbergi 1 er rúmgott með fataskápum. Nýlegt parket á gólfi (2023). 
Svefnherbergi 2 er rúmgott, ekki með fataskápum. Parket á gólfi. 
Svefnherbergi 3 er rúmgott, ekki með fataskápum. Parket á gólfi. 
Baðherbergi er með snyrtilegri hvítri innréttingu. Salerni. Handlaug. Sturtuklefi. Tengi fyrir þvottavél. Handklæðaofn. Opnanlegur gluggi. Flísar á gólfi. 
Sameiginlegt þvottahús er í kjallara hússins. 
Sérgeymsla (10 fm) er í kjallara hússins. 

Þak var yfirfarið og viðgert sumarið 2024. 

Hiti er sameiginlegur samkvæmt hlutfallstölu. Rafmagn er á sérmæli fyrir íbúðina. Þörf er á að endurnýja rafmagnstöflu. 

Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar. 
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26. gr. laga nr. 40/2002 um fasteignakaup og 25. gr. laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í. 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
4. nóv. 2016
42.600.000 kr.
39.000.000 kr.
104.7 m²
372.493 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík