Lýsing
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.
Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign
Eignin er skráð samkvæmt fasteignayfirliti 174,1 fm og skiptist þannig að íbúðin er skráð 105,6 fm, tómstundaherbergi í kjallara skráð 24,5 fm, sérgeymsla í sameign skráð 7,4 fm og stæði í lokaðri bílageymslu skráð 36,6 fm.
Nánari lýsing:
Hol er rúmgott með innbyggðum yfirhafnaskáp og náttúrustein á gólfi.
Stofa og borðstofa mjög rúmgóð og björt með parket á gólfi. Frábært útsýni.
Eldhús með snyrtilegri eldri innréttingu og flísar á milli skápa, tengi fyrir uppþvottavél, háf yfir eldavél og góðan borðkrók. Náttúrusteinn á gólfi.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með góðan innbyggðan skáp og parket á gólfi. Útgengt á góðar suður svalir.
Svefnherbergi II er rúmgott með innbyggðum skáp og parket á gólfi.
Svefnherbergi III er með parket á gólfi.
Baðherbergi með glugga, góðri innréttingu, baðkari með sturtu, tengi fyrir þvottavél og flísar á gólfi og vegg að hluta.
Bílastæði í lokaðri bílageymslu. Aðstaða til að þrífa bíla í bílageymslunni. Nýlegt rafmagn og hitablásarar.
Mjög rúmgott tómstundaherbergi í kjallara með góðri loftun.
Sérgeymsla í sameign í kjallara hússins.
Fjölskylduvæn eign miðsvæðis í Seljahverfinu. Stutt í grunn- og leikskóla, íþróttir sem og alla helstu þjónustu.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.