Lýsing
Nánari lýsing:
Forstofa er með fastaskáp og flotað gólf.
Gestasnyrting með flotað gólf.
Eldhús er með nýlegri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél og parket á gólfi og flísar á milli skápa.
Stofa og sjónvarpshol er á efsta pallinum og þar er útgengi á rúmgóðar svalir til suðvesturs. Parket og flísar á gólfi.
Hjónaherbergi er með parket á gólfi og útgengi út í garð.
Barnaherbergi 1 er rúmgott og var áður tvö herbergi og auðvelt að breyta því tilbaka, parket á gólfi.
Barnaherbergi 2 er með parket á gólfi.
Barnaherbergi 3 er rúmgott og þar er einnig eldhúskrókur, parket á gólfi.
Barnaherbergi 4 er með parket á gólfi.
Þvottahús/geymsla er rúmgott.
Bílskúr er með heitu og köldu vatni og rafmagnsopnun á hurð. Snjóbræðsla er í bílastæði.
Sérgarður til suðvesturs.
Endurbætur sem seljandi hefur ráðist í:
2015 - Baðherbergi endurnýjað.
2018 - Eldhús og gestasnyrting endurnýjuð.
2018 - Skipt um pappa og járn á þaki.
2019 - Skipt um rennur fyrir framan hús og skipt um glugga við þak.
2021 - Svalagólf flotað og múrað upp svalavegg og vatnsbretti undir stofugluggum.
2023 - Rafmagnstöflu bætt við í kjallara.
Um er að ræða eign sem er staðsett miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu og með mikla möguleika varðandi fjölda herbergja og annað skipulag.
Nánari upplýsingar veitir Kristín María Stefánsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 837-1177 eða tölvupósti kristin@trausti.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.