Lýsing
Virkilega falleg og mikið endurnýjaða 4ra herbergja endaíbúð á 2. hæð í lyftuhúsi við Álfkonuhvarf í Kópavogi. En búið er að endurnýja eldhús, innihurðar, gólfefni að mestu og hluta rafmagnstengla. Rúmgóð herbergi, stofa og borðstofa, yfirbyggðar svalir með útsýni og stæði í bílakjallara.
Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu/borðstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús innan íbúðar en henni fylgir einnig stæði í bílakjallara, sér rúmgóð geymsla og hlutdeild í sameign.
Birt stærð samkv. HMS 120 m² og skiptist í íbúðarrými 104.4 fm. ásamt geymslu sem er 15,6 fm. Samtals 120 fm.
Fyrirhugað fasteignamat 2026 kr. 86.350.000.-
Eignin getur verið laus eftir samkomulagi.
SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT eða nánari upplýsingar og skoðunartíma veitir Ingibjörg Agnes í síma 897-6717 eða inga@landmark.is
✅ Björt og rúmgóð endaíbúð.
✅ Stæði í bílakjallara.
✅ Fallegt útsýni að Elliðavatni.
✅ Yfirbyggðar svalir
✅ Skóli, leikskóli, og verslun í göngufæri.
Nánari lýsing:
Forstofa: Er flísalögð með góðum fataskáp.
Eldhús: Er með nýlegri (2022) sérsmíðaðri innréttingu frá Brúnas og tækjaskáp. Innbyggður ískápur og frystiskáppur og uppþvottavél. Helluborð og ofn frá Simens.
Stofa/borðstofa: Björt og falleg, útgengt á rúmgóðar sólríkar yfirbyggðar svalir með útsýni yfir á Elliðavatn.
Hjónaherbergi: Er rúmgott, parketlagt með góðum fataskápum.
Herbergi 1: Er rúmgott, parketlagt.
Herbergi 2: Er parketlagt, var breytt í fataherbergi en hægt að breyta aftur í upprunalegt horf.
Baðherbergi: Er rúmgott, flísalagt í hólf og gólf. Upphengt salerni, baðkar með sturtuhaus og gleri. Rúmgóð innrétting og gluggi á baði.
Þvottahús: Er flísalagt með hillum og glugga.
Geymsla: Er á jarðhæð (15,6 fm smkv. HMS).
Stæði: í bílakjallara, hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl. Stæði merkt (B-10)
Virkilega björt og falleg fjölskylduvæn endaíbúð í lyftuhúsi með stæði í bílakjallara. Stutt er í Vatnsendaskóla og leikskólann Sólhvörf sem er í götunni. Einnig er stutt í verslun í Hvörfunum ásamt helstu þjónustu. Fallegar göngu/útivistarleiðir í nágrenninu og nálægð við Heiðmörk og Elliðavatn.
Húsgjöld eignar eru samtals kr.43.722 - á mánuði en þá er innifalinn allur almennur rekstur húsfélags, rekstur á bílakjallara, allur hiti, rafmagn í sameign, húseigendatryggin.
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat