Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Víðir Arnar Kristjánsson
Árni Helgason
Vilborg Gunnarsdóttir
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Soffía Sóley Magnúsdóttir
Vista
svg

30

svg

26  Skoðendur

svg

Skráð  24. feb. 2025

fjölbýlishús

Maríubakki 8

109 Reykjavík

62.900.000 kr.

631.526 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2047931

Fasteignamat

55.250.000 kr.

Brunabótamat

42.500.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1971
svg
99,6 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Sæþór Ólafsson löggiltur fasteignasali og DomusNova fasteignasala kynna: 
Maríubakki 8, 109 Reykjavík, 3 til 4 herbergja bjarta og vel skipulagða íbúð á annarri hæð með fallegu útsýni í mikið endurnýjuðu fjölbýlishúsi.

Smellið hér til að sækja söluyfirlit

Eignin er skráð samtals 99,6 m2 skv. Þjóðskrá Íslands og skiptist í forstofu, eldhús, stofu, borðstofu, baðherbergi, tvö til þrjú svefnherbergi, þvottahús og búr innan íbúðar, stór geymsla (17,4 m2 ) í sameign í kjallara. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er einnig í kjallara.

Nánari lýsing.
Forstofa/hol er með með eldri fataskáp með rennihurðum og parketi á gólfi.
Eldhús er endurnýjað með rúmgóðri innréttingu á tvo vegu, með helluborði og ofni, gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu.
Þvottahús og búr er innaf eldhúsi með innréttingu og skápum
Stofa og borðstofa eru saman í opnu rými, útgengt á rúmgóðar svalir með góðu útsýni.
Svefnherbergin eru tvö með nýlegu parketi á gólfi, búið er að skipta stærra herberginu í tvö rými með léttum millivegg.
Stigagangurinn er mjög snyrtilegur. 
Stór geymsla fylgir íbúðinni í kjallara sameignar, hægt er að nýta það rými sem vinnuaðstöðu. 
Nýlegir ofnar eru í íbúðinni.

Húsið hefur verið tekið í gegn með endurnýjun þeirra glugga sem voru lélegir, skipt var um þakpappa og járn, lofttúður, þakrennur og niðurfallsrör. Tveir skorsteinar vor verið fjarlægðir, gamla málningin fjarlægð og húsið múrviðgert, múrhúðað og endurmálað. Grindverk og leiktæki lóðarinnar var yfirfarið, lagað og málað.
Bílaplanið endurnýjað, bætt við niðurföllum ásamt ídráttarrörum fyrir rafbíla. 
Lóðin er öll mjög snyrtileg og vel viðhaldið af verktaka sem slær grasið og klippir runna við innganga hússins. Auk þess er samningur við verktaka sem sér um að moka snjó af gönguleiðum og bílaplönum hússins. 
Eignaumsjón sér um reikninga, bókhald og aðalfundi húsfélagsins.
Barnvænt og snyrtilegt umhverfi í kringum húsið en einnig er stutt er í alla helstu þjónustu. Breiðholtsskóli og leikskólar í göngufæri í hverfinu ásamt því er stutt í Elliðarárdalinn.

Allar nánari upplýsingar veitir Sæþór Ólafsson fasteignasali í síma 855-5550 eða saethor@domusnova.is

Í söluhugleiðingum?
Hafðu samband við mig og fáðu frítt verðmat ásamt ráðgjöf um næstu skref. 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  • Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  • Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
  • Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  • Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  • Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
  • Domusnova fasteignasala

    Domusnova fasteignasala

    Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
    phone
    Ár
    Fasteignamat
    Kaupverð
    Stærð
    Fermetraverð
    13. mar. 2015
    20.100.000 kr.
    24.525.000 kr.
    99.6 m²
    246.235 kr.
    2. okt. 2013
    17.700.000 kr.
    20.500.000 kr.
    99.6 m²
    205.823 kr.
    Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
    Domusnova fasteignasala

    Domusnova fasteignasala

    Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
    phone