Opið hús: Flúðasel 61, 109 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 00 01. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 25. febrúar 2025 milli kl. 16:00 og kl. 16:30. Velkomin Díana s.895 9989, Hulda s.771 2528
Lýsing
Díana og Hulda löggiltir fasteignasalar hjá Fasteignasölunni Garði kynna:
96,1 fm 3ja herbergja íbúð við Flúðasel 61 í Reykjavík.
Eignin skiptist þannig að íbúðin sjálf er 91,6 fm og sérgeymsla 4,5 fm, samtals 96,1 fm skv. Þjóðskrá Íslands.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit.
Nánari lýsing:
Forstofa: Hvítur skápur og flísar á gólfi.
Stofa: Björt og opin með parketi á gólfi, útgengt á sér sólpall.
Eldhús: Hvít innrétting, eldavél m/viftu yfir og flísar á gólfi.
Svefnherbergi: Bjart með skápum, parket á gólfi. Væri hægt að skipta upp í tvö herbergi.
Svefnherbergi II: Rúmgott herbergi með parket á gólfi. Samkvæmt teikningu er þetta teiknað sem sjónvarpsherbergi, herbergið er gluggalaust en verið er að sækja um heimild til þess að setja glugga. Lofttúða er í herberginu.
Baðherbergi: Hvít innrétting með handlaug, baðkar m/sturtu, wc, flísar á gólfi og við baðkar. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: Geymsla er í sameign merkt 002 á teikningu.
Lokaður pallur var stækkaður og gert borð í miðju yfir brunn sem er þar. Stór garður og stórt og flott leiksvæði fyrir framan.
Það er samþykki fyrir að hafa útihurð frá stofunni og það er einnig komið leyfi hjá Reykjarvíkurborg fyrir því að setja glugga í geymslu og eldhús.
Þetta er falleg eign á góðum stað í Seljahverfi þar sem stutt er í alla þjónustu svo sem, skóla, leikskóla og verslun. Skemmtilegar gönguleiðir eru í hverfinu.
NÁNARI UPPLÝSINGAR:
Díana Arnfjörð löggiltur fasteignasali
diana@fastgardur.is s: 895 9899
Instagram: dianaarnfjordlfs
Hulda Ósk löggiltur fasteignasali
hulda@fastgardur.is s: 771 2528
Instagram: huldaosklfs
Hafðu samband ef þú vilt frekari upplýsingar eða ert með eign sem við getum aðstoðað þig við sölumeðferð
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður